Morgunverðarfundur 30. október á Hótel Sögu

Lykill að samkeppnisforskoti á erlendum mörkuðum
Aðgreining frá samkeppnisaðilum


Þriðjudaginn 30. október efnir Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands til morgunverðarfundar á Hótel Sögu frá 8.00 til 10.00. Þar munu Magnús Bjarnason framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Glitnis og Þórhallur Guðlaugsson dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands fjalla um aðferðir fyrirtækja við að ná árangri á erlendum mörkuðum
 
Þórhallur mun fjalla almennt um syllu markaðssetningu ( niche strategy ) fyrirtækja og Magnús mun fjalla um hvernig unnið er að því innan Glitnis að ná til markaða sem mörg önnur fyrirtæki líta framhjá. Í alþjóðlegri starfsemi bankans er lögð áhersla á endurnýjanleg orkumál og sjávarútveg og mun Magnús fara yfir hver lykillinn er að því að ná árangri og samkeppnisforskoti á þeim mörkuðum. 
           

Dagskrá:
8:00   Opið morgunverðarhlaðborð
8:30  Snjólfur Ólafsson prófessor setur fundinn
Þórhallur Guðlaugsson, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri  Alþjóðasviðs Glitnis
Spurningar og umræður
10:00  Fundi slitið
 
 
 
Fundargjald er 1.500 krónur með morgunverði og er fundurinn öllum opinn. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á vefsíðu Viðskiptafræðistofnunar á vefslóðinni http://www.ibr.hi.is .
 
Nánari upplýsingar veitir Dögg Gunnarsdóttir í gegnum tölvupóst dogg@hi.is eða í síma 525-5187.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ýrin

Það munar ekki um það, bara með morgunverðarfund á þínum snærum! Leiðinlegt að komast ekki í partíið þitt en svona er þetta. Og heyrðu, þú veist að þú mátt bjóða þig fram í forsetakosningum þegar þú ert 35, þú yrðir fín þar elskan. Greinilega getur allt sem þú ætlar þér og gerir það með glans. Knús

Ýrin, 29.10.2007 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Lady-Dee enn á ný

Höfundur

Lady-Dee
Lady-Dee

Nýjustu myndir

  • Sigga Alma
  • Sigga Alma
  • Freyja og vinkona hennar:)
  • Rósa
  • Nína
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 523

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband