Færsluflokkur: Bloggar
Þriðjudagur, 14. nóvember 2006
Afsakið bloggleysið....
...það er bara svo mikið að gera í skólanum núna að ég hef sjaldan vitað annað eins...
d.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 7. nóvember 2006
Hvað ætli sé í þessum laufum?
Já Angel ilmvatnið mitt er búið! Ég hef notað þetta sama ilmvatn síðan 1999 eða næstum í 8 ár (mínus þessa 9 mánuði sem ég var ófrísk). Þegar það klárast verð ég að fara að kaupa nýtt strax, þetta virkar eins og eiturlyf þegar ég kaupi það aftur geng í um og með höndina upp að vitum mínum. Alveg ótrúlegt bara hvað ætli sé í þessu?
Annað sem ég er háð er sykur. Sykur er alveg pottþétt eiturlyf og það hlýtur að vera tímaspursmál hvenær hann verður bannaður. Ég bíð eftir þeim degi og tek honum fagnandi. Þangað til get ég ekki hætt. Í þessu samhengi verð ég að nefna nóakropp.
Það allra nýjast sem ég er háð er hinn margumræddi mojito drykkur. Ég verð bara að fá mér amk einn á viku, hugsa bara um þennan drykk á hverjum degi, hvað ætli sé í þessum laufum?
d.
P.s. eruð þið háð einhverju eða er ég bara skrítin:p
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Mánudagur, 6. nóvember 2006
Mojito
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 2. nóvember 2006
Alveg hreint ótrúlegur dagur - 1. nóvember 2006
- Erla og Mummi áttu strák
- Finnur og Mæja áttu stelpu
- Bjarkirnar fimleikafélagið mitt í fréttablaðinu
- Erling fór og fékk geðveikt flotta klippingu
- Ég tók viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur
- Ég keyrði á bíl hjá gámaþjónustunni
- Ég kem heim og tilkynni bankið mitt E ekki alveg par ánægður
- Fór og klifraði í klifurvegg og hoppaði á trampolíni með unglingum
- Harpa yfirþjálfari hjá Björkunum í viðtali í Kastljósi
- Farin að sofa klukkan er orðin 00:00
d. - bara á góðum degi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 1. nóvember 2006
Dáskyggnar og Vigdís Finnboga.
Fór í höfuð- beina og spjaldhryggsmeðferð í gær. Ekki til frásögu færandi nema þetta var í sundlaugn. Maður liggur bara máttlaus með klemmu á nebbanum meðan á meðferðinni stendur. Þetta er alveg frekar skrítið sko. Þegar ég gekk inn minnti fólkið í lauginni mig á dáskyggnana í Minority Report. Ég var í rúman klukkutíma í meðferðinni og enn sem komið er er ég mikið verri, en ég veit að maður verður oft að verða verri til að verða betri.
Hápunktur dagsins í dag er viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur sem var forseti okkar ástkæra ylhýra í 16 ár. Læt ykkur vita hvernig gengur:)
d.
p.s. Haldiði að elsku Erla mín hafi ekki átt hraustan og fallegan dreng í nótt... :) Ég fékk tár í augun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 31. október 2006
Föstudagur, fínerí og fjör...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 26. október 2006
HRM, hópur, Erling og Katrín Ýr
Er bara heima í sófanum að mana mig upp í að skrifa ritgerð í Mannauðsstjórnun. Kem mér ekki að verki, bíð bara eftir að andinn komi yfir mig:) Fór til Úllu í gær og hitti verkefnahópinn minn. Við erum fimm, með þrjú verkefni í gangi núna. Ég vil bara koma því að hvað ég er heppinn með hópinn minn, hann samanstefndur af frábærum stelpum. Þær eru allar svo góðar og klárar!
Við Erling erum búin að vera saman í 4 ár um þessar mundir, finnst eins og þau séu fjörtíu. Alveg búin að gleyma hvernig lífið var án hans:) en gæti þó ekki hugsað mér það:p
Lokaorð dagsins eru orð dóttur minnar: babbi í innunni, babbi moooooka í innunni:D Ætli hún viti meira en við og kannski er Erling ekkert að vinna hjá KB-banka, kannski er hann að vinna við mokstur hjá borginn hvað veit ég, og sú stutta er alveg hörð á þessu.
d.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 25. október 2006
Kastljós.
Er búin að vera að hlusta á Kastljós síðan í gær meðan ég fer í gegnum ritrýndar greinar. Varð að heyra viðtalið við söngvarann sem er á alla vörum. Fannst hann frekar vandræðalegur og illa að máli farinn. Er enn að hugsa hvað hann var að reyna að segja.. Þú veist hérna sko þú veist eins stúbid og slæmt það er skiliru....... Karlgreyið . Svo ræddi spyrillinn um gagnrýni á textana sem voru á síðustu plötu hljómsveitarinnar. Þar er talað mikið um klám og eiturlyf. þegar hann var spurður hvort að nýja platann innhéldi lög með slíkum textum sagði hann: Nei nei bara svona þú veist egoið ýta undir egóið.. Eða nei það er eitt lag.
Ég var í saumó í gær og við ræddum þetta svolítið og sérstaklega þá hvað okkur finnst allt vera að breytast og að eiturlyf séu farin að flæða í stað landa fyrir nokkrum árum. Hefur þetta verið svona lengi eða hefur eiturlyfjaneysla aukist?
d.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. október 2006
Þriðjudagur, Asía og Nína Dögg.
Er í aðferðafræði að ræða um rannsóknarsnið. Bara ágætt sko. Er að fara á Asíu í hádeginu ætla kynna Erlu fyrir kjúklingasúpunni góðu:) Fer sko vanalega þangað með Birnu:)
Heyrðu datt eitt í hug hef verið spurð sérstaklega oft upp á síðkastið hvort ég annað hvort leikið í Börn eða eigi systur sem leiki í myndinni! Dæmi hver fyrir sig! Kem með passamynd af mér við hliðina á eftir.
K
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 23. október 2006
Frábær helgi:)
Helgin var skemmtileg og viðburðarík. Á laugardaginn fórum við Katrín Ýr með Baldvini og Eddu í húsdýragarðinn. Þar vorum við á þriðja tíma og skemmtu börnin sér konunglega. Skoðuðu dýrin, fóru í hringekju, lest og kastala. Um kvöldið elduðum við Erling dýrindismat kjúkilingabringur, piparosta- og sveppasósu, salat og kartöflubáta.. Nammi namm.
Á sunnudag byrjuðum við daginn í sunnudagsskólanum. Það hittum við Eddu og Baldvin aftur. Dótlan mín var ekki alveg í sínu besta formi þar var meira að hlaupa um heldur en að hlusta og syngja, frekar illa upp lögð. Eftir sunndskólann fórum við heim og sú styttri fór beint í bólið. Eftir dúr fórum við á Ronju ræningjadóttur. Ótrúlegt en satt en dóttir mín 21 mánaða sat eins og myndastytta í 2 tíma. Hún varð svekkt þegar sýningunni lauk, ekki búið meia, sagði hún:D
Helgin endaði svo eins og alltaf hjá ömmu í mat.:)
d.
P.s. mig dreymdi í nótt að Erling hefði haldið framhjá mér. Kenni Aðþrengdum eiginkonum um en við horfðum á þær áður en við fórum að sofa í gærkvöld. Það var ekki laust við að ég væri fúl og foj út í Erling þegar ég vaknaði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Lady-Dee enn á ný
Myndaalbúm
Tenglar
Vinir mínir og félagar.
- Ragna Bára
- Gamla bloggið mitt:)
- Finnur Finnur æskuvinur minn
- Þórey Edda Stangarstökkvari Íslands
- Guðrún Björk ..námsgella og snillingur
- Konungshjónin Hildur og Gulli
- Jóhanna Jóhanna æskuvinkona mín.
- Ragga Dís Fimleikaskutla
- Sigga Lísa sæta Kennari og fimleikadís
- Perla mín
Fjölskyldan mín.
- Tinna Sæta frænka Listfræðineminn okkar:)
- Birkir Birkir hennar Dagnýjar
- Halli Í köbem í köben hérna út í köbenhavn
- Dagný litla systir Prímadonnan
- Anna systir Í kóngsins köben!
- Mamma Bloggar aldrei!
- Katrín Ýr Krúsan mín
- Erling Ástin mín
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 625
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar