Sérstakur dagur fyrir dóttlu!

Já það var svo sannarlega óskadagur fyrir krúsuna mína í dag. Við byrjuðum daginn á að fara í kór sem hún er nýinnrituð í. Henni finnst rosalega gaman en er hrikalega feimin. Syngur ekki neitt, hún er með svo mikla fullkomunaráráttu þessi elska gerir ekkert nema hún kunni það upp á 10. Þetta var annað skiptið og voru ótrúlegar framfarir samt (þó hún hafi ekki sungið neitt í dag, spáið í það).

Úr kórnum fórum við með kórfélaga hennar, og stórvinkonu, Sölku og Perlu mömmu hennar í bakarí þar sem stelpurnar léku sér í Skoppu og Skrítlu leik. Á einu borðinu sátu nokkar eldri konur og höfðu mikinn áhuga á skottunum. Spurðu hvort þær væru jafn gamlar, hvort þær væru tvíburar og hvort þær væru til í að syngja eitthvað fyrir sig. Þær héldu það nú og skyndilega breyttist bakaríið í tónleikahöll. Þar sem konurnar klöppuðu alltaf og báðu um meira. Frekar fyndið sko híhíhí....

Úr bakaríinu fórum við í bíó og sáum Töfraprinsessuna mér fannst hún mjög skemmtileg:) mæli sko alveg með henni;) Dóttlu fannst hún geðveik og vill fá DVD-diskinn strax í gær! Hef sjaldan séð hana skemmta sér svona vel í bíó. Hún var mas alveg til í að sjá hana strax aftur. ANnars er þetta búin að vera sannkölluð bíó-vika hjá mér! Fór á bee-movie á mánudag, Brúðgumann í gær og þessa í dag. Geri aðrir betur!!!

Annars segi ég bara líf og fjör og ég mæli með MindManager!!!

d. - hrikalega södd

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að lesa færsluna en hef ekkert að segja.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.1.2008 kl. 23:17

2 identicon

Alltaf gaman að skella sér í bíó - svo verður þú að koma aftur á Gosa með skvísuna:)

Birna Björnsdóttir (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Lady-Dee enn á ný

Höfundur

Lady-Dee
Lady-Dee

Nýjustu myndir

  • Sigga Alma
  • Sigga Alma
  • Freyja og vinkona hennar:)
  • Rósa
  • Nína
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 476

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband