Freyja og Alma frábærar:)

Ég bað Freyju og Ölmu um að koma á fund hjá unglingahóp SKB:) Þær komu svo í kvöld og voru yndislegar. Þær lásu upp úr bók sinni um líf Freyju, Postulín, spjölluðu við krakkana, borðuðu með okkur og svöruðu öllum spurningum án þess að hika. Mér fannst Freyja hrífa krakkana á einstakan hátt og ná rosalega vel til þeirra. Þau hlustuðu af athygli, voru áhugasöm og voru ófeimin við að spyrja um allt milli himins og jarðar.

Kærar þakkir:) Þið voruð frábærar!

 

kv

d. 

 p.s. Freyja er búin að blogga um heimsóknina: http://almaogfreyja.blog.is

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir

Kæra Dögg

Takk fyrir fallegu commentin á blogginu okkar - það var yndislegt að koma til ykkar í gærkvöldi og ég er djúpt snortin yfir þessum glæsilegu unglingum :) Þeirra spurningar og hugleiðingar skildu okkur eftir hugsandi.

Bréfið er líka ótrúlega fallegt, skilaðu hjartans kveðju til þess sem sendi það.

Takk fyrir okkur!

Kv. Freyja

Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir, 31.1.2008 kl. 17:10

2 Smámynd: Lady-Dee

Það var ekkert þakka þér sömuleiðis:) Ég skila kveðjunni til dömunnar með bréfið:)

kv Dögg.

P.s. Katrín Ýr sagði í dag að hún vildi aftur fara í vinnuna mína og hitta Freyju og Ölmu, hún var mjög hrifin af ykkur litla skottið:)

Lady-Dee, 31.1.2008 kl. 22:15

3 Smámynd: Lady-Dee

... já Ásdís við verðum að lesa bókina:)

Lady-Dee, 31.1.2008 kl. 22:16

4 identicon

Ég tek undir með Ásdísi - gaman að heyra að þær hafi komið og hef einmitt oft hugsað að þetta sé næsta bók sem mig langar til að lesa...spurning um að gera þá eitthvað í því! Yndislegar manneskjur þar á ferð .

kv Birna

Birna Björnsdóttir (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Lady-Dee enn á ný

Höfundur

Lady-Dee
Lady-Dee

Nýjustu myndir

  • Sigga Alma
  • Sigga Alma
  • Freyja og vinkona hennar:)
  • Rósa
  • Nína
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 476

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband